Leita í fréttum mbl.is

Ennþá geðveikt gaman á Kýpur og fleiri tattoo

Enn erum við í blíðunni hér á eyjunni Kýpur, geðveikt veður og ákkúrat þegar þetta er skrifað er 33,5°C og einhver raki (sem ég bara finn ekki vegna raka sem sprettur frá mér). Ferðin hefur verið æðisleg og er hálffúlt að henni fari brátt að ljúka...eða bara mjög fúlt...get þó huggað mig við það að fá að sofa í kuldanum á Íslandi næsta miðvikudag...eftir tvær nætur í London sem ættu að brúa bilið.

Frá því að ég röflaði síðast erum við ekki búin að gera neitt sérstaklega mikið, annað en að lenda í veseni með bankann, fara á vínsmökkunarhátíð sem var snilld, borða góðan mat og taka því rólega í sólinni...við reyndar fórum í vatnagarð seinasta mánudag sem var ógeðslega gaman...bara ein rennibraut sem ég mátti ekki fara í út af nýja tattooinu...sem er reyndar næst nýjasta tattooið mitt í dag...

Við Helga fórum í morgun og fengum okkur tattoo...ég reyndar ætlaði ekki að fá mér tattoo fyrr en ég spurði hvað hann myndi rukka fyrir mynd sem ég var með í veskinu...En Helga fékk sér geðveika mynd af tígrisdýri sem stendur á klett og sólin er að setjast fyrir aftan það...geðveik mynd (sést á mynd hérna fyrir neðan) og ég fékk mér verndarrún þrumuguðsins Þórs (Helm of Awe) á kálfann...(sést líka á mynd fyrir neðan)

 En allavega...við biðjum bara að heilsa

SN150538

SN150543

og svo hendi ég inn mynd af "gamla" tattooinu líka bara til að hafa þetta allt í einu

Árni Þór á Grýsku


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nett en ég skil ekki hvað þetta er á neðri myndinni

Anna Lára (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 12:42

2 Smámynd: Árni Þór Eiríksson

Verndartákn Þrumuguðsins Þórs í norraenni goðafraeði ;)

Árni Þór Eiríksson, 4.7.2008 kl. 12:44

3 identicon

Flott hjá karlinum :)

Óskar (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 15:22

4 identicon

flott tatto en hvað á að þýða að vera að missa sig svona árni geturu ekki stoppað eftir eitt?

skúli (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 21:07

5 Smámynd: Árni Þór Eiríksson

Þetta var bara slys mar...

Árni Þór Eiríksson, 5.7.2008 kl. 09:15

6 Smámynd: Árni Þór Eiríksson

En hvernig finnst fólki nýja blekið hennar Helgu?

Árni Þór Eiríksson, 5.7.2008 kl. 12:19

7 identicon

Það er helvíti töff, en hvenar koma hjónin aftur heim, er ekki frá því að það er kominn pínu söknuður haha eins og það vannti litlu tána á mann

Óskar (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 11:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Árni Þór Eiríksson
Árni Þór Eiríksson
23 ára sálfræðinemi við HÍ sem reynir að fylgjast með því sem er að gerast í Samfélaginu...ég bara nenni því ekki alltaf...annars hef ég mikinn áhuga á bílum, mótorhjólum, formúlunni og tónlist....

Nýjustu myndir

  • 911 Carrera 4 S
  • Range Rover Sport Kahn
  • Shelby GT500
  • Lotus 7
  • Nissan Skyline R34 GT-R

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband