4.7.2008 | 12:35
Ennþá geðveikt gaman á Kýpur og fleiri tattoo
Enn erum við í blíðunni hér á eyjunni Kýpur, geðveikt veður og ákkúrat þegar þetta er skrifað er 33,5°C og einhver raki (sem ég bara finn ekki vegna raka sem sprettur frá mér). Ferðin hefur verið æðisleg og er hálffúlt að henni fari brátt að ljúka...eða bara mjög fúlt...get þó huggað mig við það að fá að sofa í kuldanum á Íslandi næsta miðvikudag...eftir tvær nætur í London sem ættu að brúa bilið.
Frá því að ég röflaði síðast erum við ekki búin að gera neitt sérstaklega mikið, annað en að lenda í veseni með bankann, fara á vínsmökkunarhátíð sem var snilld, borða góðan mat og taka því rólega í sólinni...við reyndar fórum í vatnagarð seinasta mánudag sem var ógeðslega gaman...bara ein rennibraut sem ég mátti ekki fara í út af nýja tattooinu...sem er reyndar næst nýjasta tattooið mitt í dag...
Við Helga fórum í morgun og fengum okkur tattoo...ég reyndar ætlaði ekki að fá mér tattoo fyrr en ég spurði hvað hann myndi rukka fyrir mynd sem ég var með í veskinu...En Helga fékk sér geðveika mynd af tígrisdýri sem stendur á klett og sólin er að setjast fyrir aftan það...geðveik mynd (sést á mynd hérna fyrir neðan) og ég fékk mér verndarrún þrumuguðsins Þórs (Helm of Awe) á kálfann...(sést líka á mynd fyrir neðan)
En allavega...við biðjum bara að heilsa
og svo hendi ég inn mynd af "gamla" tattooinu líka bara til að hafa þetta allt í einu
Bloggvinir
Myndaalbúm
Tenglar
Formúla 1
ýmsir tenglar sem tengjast formúlunni
- motorgames.eu
- McLaren-Mercedes heimasíða McLaren
Bílar
ýmislegt viðkomandi bílum og aukahlutum
- Króm.is Síða með fréttum af bílum og öðru sem þeim viðkemur
- Toyota aukahlutir fullt af aukahlutum fyrir toyotur,,,og lexus
- seriouswheels.com mögnuð síða um allskyns bíla.
- Vefsíðan hjá Top Gear Greinar, Umfjallanir, Snilld
- Jay Leno´s garage Titillinn segir það allt...þetta er bílskúrinn hjá Jay Leno
- Mercedes-Benz klúbbur Íslands Hér er heimasíða Mercedes-Benz klúbbsins á Íslandi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Nett en ég skil ekki hvað þetta er á neðri myndinni
Anna Lára (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 12:42
Verndartákn Þrumuguðsins Þórs í norraenni goðafraeði ;)
Árni Þór Eiríksson, 4.7.2008 kl. 12:44
Flott hjá karlinum :)
Óskar (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 15:22
flott tatto en hvað á að þýða að vera að missa sig svona árni geturu ekki stoppað eftir eitt?
skúli (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 21:07
Þetta var bara slys mar...
Árni Þór Eiríksson, 5.7.2008 kl. 09:15
En hvernig finnst fólki nýja blekið hennar Helgu?
Árni Þór Eiríksson, 5.7.2008 kl. 12:19
Það er helvíti töff, en hvenar koma hjónin aftur heim, er ekki frá því að það er kominn pínu söknuður haha eins og það vannti litlu tána á mann
Óskar (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 11:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.